Textaskilaboð
Tækið styður textaskilaboð sem fara yfir takmörkin fyrir ein skilaboð. Lengri skilaboð
eru send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega gjald í samræmi
við það. Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra tungumála taka meira
pláss og takmarka þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum skilaboðum.
Stafafjöldi sem eftir er og fjöldi skilaboða sem þarf til sendingar birtist.
Til að hægt sé að senda skilaboð þarf rétta skilaboðamiðstöðvarnúmerið að vera vistað
í tækinu. Venjulega er þetta númer sett sjálfkrafa inn með SIM-kortinu. Til að setja
númerið handvirkt inn velurðu
Valmynd
>
Skilaboð
>
Skilaboða-stillingar
>
Textaboð
>
Skilaboðamiðstöðvar
>
Bæta við miðstöð
, og slærð inn nafn og númer
frá þjónustuveitunni.