
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð.
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
1 Fjarlægðu bakhliðina með því að lyfta henni frá efri enda tækisins (1).
2 Fjarlægðu rafhlöðuna (2).
3 Opnaðu festingu SIM-kortsins og settu SIM-kortið í (3). Gættu þess að tengin á
kortinu vísi niður og að skáhorn kortsins snúi að efri enda tækisins. Lokaðu
festingunni (4).
4 Komdu rafhlöðunni fyrir (5) og settu bakhliðina á sinn stað (6).