
Samnýtt minni
Eftirfarandi aðgerðir í þessu tæki geta samnýtt minni: margmiðlunarskilaboð (MMS), tölvupóstforrit, spjallskilaboð. Notkun
einnar eða fleiri af þessum aðgerðum getur minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir. Ef tækið sýnir boð um að minnið sé fullt
skaltu eyða einhverjum upplýsingum úr samnýtta minninu.
Stafræn réttindi
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.
höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu tæki er hægt að
opna efni sem verndað er með OMA DRM 1.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni kunna efniseigendur að
biðja um að geta slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænni réttindatækni sé endurvakin. Slíkt kann
einnig að hindra endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif
á notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er verndað með stafrænum
réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.