Nokia 2220 slide - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-4C rafhlöðu. Hugsanlega verða hægt að

fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi

hleðslutækjum: AC-3. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd

með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C, K eða UB.

24 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er

orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins

skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að

tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar

mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa

fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar